11.05.2012 19:00
Ótitlað
30.04.2012 08:11
1. Maí.
Ég, Oddgeir og Bretinn ætlum að skella okkur uppá fasta á morgun.
Við ætlum að fara með ferðinni kl. 1130 og koma kl. 1900 aftur. Við
ætlum að renna upp að Geysi og jafnvel yfir á Laugavatn ef tími er
til. Ef einhverjir hafa áhuga á að slást í för þá er endilega að mæta
í Jólfinn í fyrramálið. Veðurspáin er fín. Goggakveðja Laugi.
26.04.2012 12:44
Fundur

Sælir drengir. Við ætlum að hittast í Sælahúsinu hjá húsbílaköllunum á laugardaginn næsta kl. 1100. Tekið verður stutt spjall um stöðu mála í væntanlegu húsnæði okkar. Sjáumst á laugardaginn. Læt fylgja með eina gamla sem tekin var í þá gömlu góðu í Krók, Jói sennilega að ræða um efnahagsvandann á sjöunda áratugnum.
17.04.2012 22:09
Fundarboð

Sumardagurinn fyrsti er næstkomandi fimmtudag og ættlum við að hittast á verkstæðinu hjá Lilla kl:11 í kaffi og kökur og taka svo nokkra rúnti ef veður leyfir.
ps:það spáir mjög góðu.
13.04.2012 14:59
Triumph Thunderbird Storm.
Gísli G. Sveinsson á Akureyri fékk þetta kvikyndi um daginn til landsins. Þetta er Storm 1700 flutt inn frá USA með fullt af aukadóti. Þetta er öflug Nostalgíugræja frá Bretanum og hætti við að margur Bretaaðdáandinn svitni í lófunum, allavega veit ég um einn Hjólabróðir og nokkra Drullusaokka sem missa sennilega vatnið yfir svona löguðu. Goggarir segja til hamingju Gísli og gaman væri að fá að sjá kvikyndið á Eyjunni í sumar.
Hugguleg græja og sennilega eina sinnar tegundar á landinu.
Gísli á einnig þennan laglega Speedmaster og er hann til sölu á bill.is með fullt af aukadóti.
09.04.2012 21:41
Annar í páskum.


Nokkrir rúntir að kveldi annars í páskum í mjög góðu veðri.
08.04.2012 19:59
Páskadagur.


Fákurinn tekin út og farið nokkrir rúntir,veðrið var ekki upp á marga fiska en slapp.
Á morgun spáir þokkalegu veðri þannig að það verða væntanlega einhver hjól á ferðinni.
29.03.2012 21:13
HRÚTURINN 2012

Jæja drengir þá er Hrúturinn 2012 framundan. Goggarnir bregðast ekki aðdáendum
sínum og verða með sætaferðir í bæinn á morgun, aðeins er eitt sæti laust í
Goggarútunni á morgun. Þessir á myndinni verða örugglega ekki í fílu frekar en
venjulega. Að auki verða Krummi og Oddi með. Ég talaði við Kristján Sveinsson
Breta formann hjólabræðra í dag og ætla þeir að taka á móti okkur seinnipartinn
á morgun í nett kaffispjall og sýna okkur aðstöðu þeirra. Binni ætlar að kíkja á
1500 Kawa Mean Streak sem hann er að spá í og vonandi verður hægt að lenda
einhverjum samningum þar. Annars er bara nóg framundan og Kænunni er
óhætt að fara að setja eitthvað hollt í ofninn. Sjáumst í fyrramálið,
Goggakveðja Laug.
26.03.2012 07:35
Hrúturinn 2012
Hrúturinn 2012, hin árlega ferð Gogganna að skoða dótabúðir verður
farin föstudaginn 30. mars n.k. Góð þátttaka er og er allt frágengið,
hótel og bíll. Láki í Icebike ætlar að vera með á könnunni. Silli er
búinn að taka frá borð í Kænunni.
Við ætlum að hittast hjá Lilla í kvöld kl. 1930 og fara yfir það sem
er framundan, ferðalög og húsnæðismál.
Kveðja IBBI.
23.03.2012 07:18
Bike week



Þá er þessari mögnuðu hátíð lokið og við komin heim á klakann.
Þetta er svo stór hátíð að við gátum aðeins skoðað brot af henni þannig að við verðum búin að skoða allt svæðið ca.árið 2015.
p.s.það eru komnar myndir inn í myndaalbúm
18.03.2012 22:35
Bike week





Karlinn fór í Hondubásinn og mátaði nýtt 1300cc,það kostar rúmar þrjár millur komið heim.
Í fyrramálið förum við í hjólatúr og verðum með hjólin fram á miðvikudagsmorgun.
Eins og þið sjáið er veðrið alveg frábært í kringum 27 stiga hiti,hér hjóla allir í stuttbuxum og bol.
18.03.2012 18:30
Hvað er að gerast í Ríkunni.
Voðalega er rólegt yfir ykkur, hittuð þið kannski þennan í gær.
Hér er allt við það sama snjór og viðbjóður, en stendur þá til
bóta með suðaustan slagveðri í nokkra daga, Kveðja Ibbi.
Loðnuvertíð er að ljúka hjá vinnandi fólki.
17.03.2012 14:39
Bike week




Við komum til Daytona í gær vorum búin að vera niðrá Maiami fyrstu dagana,hér eru motorhjól í þúsundatali af öllum gerðum og stærðum.
17.03.2012 10:46
Hrúturinn 2012.
Það virðist stefna í 100 % þátttöku í Hrútnum 2012. Aðeins verður
leyfður Hrútapilli í ferðinni og mun Silli (Bretinn) sjá um að reglum
verði framfylgt.

